2003 - 2005

Myndadagbók - fotodagbok - webpicturebook

....í máli og myndum af því sem er að gerast hérna hjá okkur Íslendingunum á Kantarellvägen í Stokkhólmi / Skráð af Halldóru.  
Þar sem nýr fjölskyldumeðlimur bættist í hópinn í júlí 2004 er hann aðal umræðu- og myndaefnið - nuförtiden..... :-)

Välkommen att titta på lite bilder från oss familjen,

/ Halldóra, Freyr, Hrefna og Skarphéðinn.


Lilypie 3rd Birthday Ticker

 
Freyr Barkarson
Halldóra Skarphéðinsdóttir
Hrefna Björk Birgisdóttir og

Skarphéðinn Arnar Freysson

"Íslenskir Svíar" frá því 1998 ...:-)



  


Velkomin á heimasíðuna okkar!

  Á þessum síðum er að finna mál og myndir af því sem á daga okkar hérna í Stokkhólmi hefur drifið undanfarið (skráð af Halldóru). Þetta eru mest myndir úr hversdagslífinu, sem mig langar að deila með fjölskyldu og vinum á Íslandi. Gjörið svo vel að kíkja!



SV:
Välkommen att titta i vår fotodagbok ! Meningen är att dela mera av vår vardag med familj och vänner hemma på Island, många av vilka aldrig har kommit hit - och har ingen aning om hur det ser ut hos oss i Sverige.....



_ _ _






Hrefna í sveiflu heima á Kantarellvägen...

_ _ _

Epost: halldora@itm.su.se



 

 Nokkrir linkar:

Erla frænka á blogginu

Hjödda frænka á blogginu
Hjördís listakona






Mjeouw!
Randí er flutt heim til Per, kærasta Hrefnu.... :-)




Já, Skarphéðinn litli bloggar með mömmu, þar eru semsagt hin daglegu afrek og ævintýri hans birt í myndum og máli - oftar en hér á heimasíðunni (af þvi það er einfaldara). Fyrir ömmur og afa og ykkur öll á Íslandi sem vilja fylgjast með mér. Hér er bloggsíðan okkar!

Sv: Besök vår bloggsida, den uppdateras oftare, och där finns många bilder. Den är främst för släkten på Island  - som vill se vad händer i Skarpis liv här i Sverige, och därför på isländska. Om ni inte förstår isländskan kan ni åtminstone titta på bilderna..... :-)




< Hér á Flickr er myndasería af Skarphéðni 0-12 mánaða.....




Sept 2006
Haust enn á ný....




Ágúst 2006

Sumarfríið er búið - en ekki sumarið :-)
Skarphéðinn elskar að hlaupa um í garðinum léttklæddur. Og finnst frábært að sulla í litlu lauginni sinni. Hann varð hvíthærður af sumarsólinni einsog sjá má !!!





Júlí 2006


Skarphéðinn stóri strákurinn varð tveggja ára 8.júlí !!!
Ótrúlega gott sumar allan mánuðinn með Miðjarðarhafsloftslagi...
Gestir í heimsókn; Erla og Vera; og Íris og Tumi.
Mikið sullað í garðinum, og farið oft á ströndina - yndislegt!





Júní 2006


    Öll fjölskyldan í sumarfrí til Toscana á Ítalíu. Það var algjört æði....
!
 


 
Maí 2006

Vor í Sverige.

Íslandsferð í tilefni brúðkaups Erlu frænku og Víglundar - það var rosalega skemmtilegt.





Apríl 2006

Halldóra fór til norður Ítalíu í 5 daga vinnuferð, mjög gaman. Sá Verona, Mílanó og Parma - þar sem Gunilla er nú búsett. Foreldrar Freys og amma komu í heimsókn um páskana. Loksins kom vorið í lok apríl- eftir langdreginn vetur.





Mars 2006

Hæst ber Kaupmannarhafnarferð sem við fórum til að fagna þar fertugsafmæli Hjöddu frænku, en hún lagði land undir fót og fór með alla familíuna sína í helgarferð frá Íslandi til Köben. Hér eru myndir frá þeirri ferð.





Febrúar 2006

Fallegt vetrarveður dag eftir dag, og við Skarphéðinn förum út með snjóþotuna á hverjum degi. Ekki endilega til að renna okkur í brekku, heldur bara til að draga á eftir sér útá róló, eða til að draga Skarphéðinn á henni,
Hann elskar snjóinn og að vera úti að leika. Er stundum stríð að fá hann til að koma inn....!. :-)






Janúar 2006
Skarphéðinn varð eins og hálfs árs í janúar, orðinn stóri strákurinn! Og verður alltaf duglegri og duglegri.... Og er alltaf jafn bestur.
Nú er mamma farin að vinna 75% í stað 50%, og Skarphéðinn því farinn að vera lengur á leikskólanum. En hann er mjög sáttur við það.
Það er allt á kafi í snjó, ekta vetur - sem okkur finnst æðislegt.,




Desember 2005
Aðventan, jólin og áramótin....
Skarphéðni fannst þetta allt soldið spennandi; pakkarnir, jólasveinarnir, jólatrén og það allt. En því miður var hann veikur á aðfangadag, með gubbupest og ansi ræfislegur greyið ! Hér eru myndir frá jólunum.





Nóvember 2005
Skarphéðinn er alltaf jafn sprækur og hress.
Við fórum til Parísar í lok okt/byrjun nóv í tilefni af 40 ára afmæli Freys, öll fjölskyldan og Per (kærasti Hrefnu) líka, rosalega skemmtilegt, París er geggjuð borg! (Það er texti neðan við myndirnar).


Íbúðin foreldra Halldóru var seld, hafði staðið tóm síðan Valgerður dó í maí. Ákveðið uppgjör, visst "ankeri" og heimili á Íslandi farið...
Við eigum margar myndir af íbúðinni
, nýjar og eldri.




Október 2005
Freyr varð 40 ára 21.okt og fékk m.a. nýjan bol sem hann fer ekki úr: Det tog mig 40 år att bli så här perfekt!". Mamma hans og Víking komu í heimsókn frá Íslandi í tilefni afmælisins. Hér er smá Freysa-myndaalbúm sem var sett saman um drenginn í tilefni þessara tímamóta. Það er skýringatexti við flestar myndirnar.

Halldóra fór í sloruga sýnatökuferð til Íslands í byjrun okt með Birgittu úr vinnunni.





Sept 2005
Skarphéðinn er orðinn stóri leikskólastrákurinn! , er á Svampskogens förskola 3x í viku. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt... Hrefna er mjög ánægð í menntaskólanum.... og elskar hann Per sinn alltaf jafn mikið :-). Bæði Lovísa, Stína og Halla (fyrrum Sverige-búar) voru hér á ferð og ég (Halldóra) hitti þær allar, það var mjög ljúft.





Ágúst 2005
Sumar í Svíþjóð, sól og letilíf..... 
Ási, Unnur og börn kom í heimsókn til okkar, og við fórum svo öll saman til Gautaborgar og á Vesturströndina (það var æði!), Skarphéðinn byrjaði í aðlögun fyrir leikskóla í lok ágúst (jeminn, stóri strákurinn!). Og Hrefna byrjaði í menntó (!). Og ýmislegt fleira.... Hér eru myndir frá heimsókn til Örju, og mömmuhópurinn hittist í grillveislu til að halda uppá eins árs afmæli gríslinganna okkar.

Sv:  Vi tog det lugnt hemma. Fick gäster från Island och äkte till västkusten. Skarpi började på dagis i slutet på månaden, och Hrefna storasyster började på gymnasiet!! Vi besökte Arja, träffade hela mammagruppen på grillfest för att fira alla våra ETT-åringar. Ja tiden går fort, känns som det bara var förra månaden Skarpi föddes!





Brimilsvellir, Snæfellsnesi
Júlí 2005 : ÍSLAND !!

Við fórum í þriggja vikna ferð til Íslands þar sem við ferðuðumst soldið um landið; fórum á Snæfellsnes og til Akureyrar, í smá sigthseeing um Reykjavík, Bláa lónið og um Krýsuvík með Birgittu og Emmu, fórum í sumarbústað til pabba Freys, Halldóra heimsótti eyðibýlið hennar Unnar, Bjarnatanga, rétt fyrir utan Kirkjubæjarklaustur og við fórum á Duran Duran tónleikana (ójá!) og margt fleira......  Þetta var allt saman frábært en aðaldæmið og megin-tilgangur ferðarinnar var þó það að Skarphéðinn var skírður 8.júlí, á eins árs afmælisdaginn sinn.

Sv:  Vi var tre veckor på Island - och hadde jättekul - och tog massa kort... Det viktigaste var Skarpis dop på hans ettårs födelsedag :-). Sedan reste vi ut på landet, till Snæfellsnes och Akureyri, "turistade" i Reykjavík, Blåa lagunen och Krýsuvík tillsammans med svenska Birgitta och Emma, besökte Freys pappa i en stuga i Grímsnes, såg Duran Duran konserten (jepp!), och Halldóra åkte tillsammans med vänninor til Unnurs gård Bjarnatangi utanför Kirkjubæjarklaustur, och mycket mer.....




Júní 2005

Sól og sumar og 17. júní og midsommar og heimsókn á Skansen með mömmunum í mömmuhópnum okkar sem hittist alltaf á miðvikudögum. Líka 3ja vikna Íslandsferð þann 28. júní.




Sv: Sol och sommar! Alltid nya bilder på bloggsidan. .....





Maí 2005


Maí var viðburðaríkur. Halldóra og  Skarphéðinn fóru í heimsókn til mömmu (ömmu Skarphéðins) á Íslandi í byrjun maí (þá var þessi mynd tekin), hún var nýkomin heim af spítala vegna lungnabólgu. Í ljós kom að lungun voru mjög léleg, vegna lungnaþembu - og illkynja æxlis í öðru lunganu. Viku eftir að við komum aftur til Svíþjóðar hrakaði henni mjög svo við fórum aftur til Íslands 19. maí. og þann 21. maí lést hún. Jarðaförin fór fram í kyrrþey að hennar ósk. Önnur sorgleg og erfið ferð til Íslands á 1 ári.....


Sv: Halldóras mamma dog den 21. maj. Halldóra och Skarpi var där, Hrefna och Freyr kom senare för att vara på begravningen.




Apríl 2005

Vorið er komið! Og Skarphéðinn er búinn að fara út að leika í fyrsta skiptið - í íshokkí :-). Hann
er ennþá sætastur af öllum börnum og maður getur bara ekki hætt að knúsa hann!!!, einsog sést á þessum myndum (Hrefna, ég er sko auðvitað bara að meina börn yngri en 16 ára, og bara miðað við stráka).



Sv: Våren är här! Skarpi har lekt utomhus för första gången - tränade ishokkey :-). Vem är sötast av alla !!??? Titta på dessa sötnosbilder så får ni se.





Mars 2005

Erla og Vera fóru heim í byrjun mars eftir 2ja vikna heimsókn, það var alveg hrikalega skemmtilegt að hafa þær! - og mjög einmanalegt eftir að þær fóru heim. Hér eru myndirnar hennar Veru frá Stokkhólms-heimsókninni. Síðan var nokkuð um veikindi á bænum, bæði Freyr og Skarphéðinn lasnir og þurftu tvisvar að fara á sýklalyfjakúr... úff.

Við notuðum síðan páskahelgina í að mála hjá okkur, svo nú er allt ljóst og létt, voða fínt.

Sv: Jättekul med lilla Vera på besök från Island !




Febrúar 2005

Allt á kafi í snjó, sannkallað vetrarríki. Erla frænka, Víglundur og Vera litla komu í heimsókn frá Íslandi, Víglundur stoppaði í 1 viku, en Erla og Veraí 2.




Sv: Härligt vinterväder!  Erla, Víglundur och lilla Vera kom pä besök från Island.





Janúar 2005

Skarphéðinn Arnar er hress á nýju ári... eins og við hin.
Fór í 2ja vikna heimsókn til Íslands með mömmu, hér eru myndir frá Íslandsferðinni.



Sv: Ja, full fart hos oss alla och Skarpi.
Halldóra och Skarpi åkte till Island igen  för att hälsa på släkten och vänner. (Yippie!). Stannade 2 veckor, här är bilder från Islandsbesöket.







Desember 2004


Já jólin komu - eins og vera ber í desember.
Hér eru myndir frá fyrstu jólunum hans Skarphéðins.

 


Sv: God jul!! Här kan ni se bilder från Skarpis första jul.




Nóvember 2004
Veturinn kom uppúr miðjum nóv, og allt fór á kaf í snjó (bráðnaði svo reyndar í burtu í byrjun des...!)

 


Sv: Vinteren är här, härligt!





Október 2004

Halldóra og Skarphéðinn fóru til Íslands í þrjár vikur, 10. - 30.okt. Til að sýna sig, sjá aðra og hafa gaman! Hér eru myndir frá Íslandsheimsókninni. Annað fréttnæmt er að Hrefna fór í Hair Extreme Makeover (heima hjá sér) í byrjun okt: Jebb, litaði hárið á sér dökkt!




            Sv: Skarphéðinn och mamma Halldóra åkte till Island för 3 veckor (10.-30.okt). För att visa upp sig, och för att ha roligt. Här är bilder från Skarpis första Islandsbesök. Hemma på Kantarellvägen hände detta: Hrefna färgade håret - har blivit Brunett!




September 2004
Hella og Unnur komu í helgarheimsókn /húsmæðraorlof til okkar, til að knúsa hann Skarphéðinn, og til að slappa af og hafa gaman. Það var rosa gaman! Annars eru núna bara mest teknar myndir af honum Skarpa.... Hér eru myndir af honum frá september.

        Sv: Helena och Unnur kom på besök i början på september för att hälsa på Skarpi, och för att ha roligt. Det blev dom enda bilderna vi tog på något annat än Skarpi den här månaden..... :-) Här ser ni bilder på Skarpi från September.





Ágúst 2004
Já, það snýst allt kringum nýjasta fjölskyldumeðliminn hann Skarphéðinn rúsínubollu. Og það
eru eiginlega allar myndir sem teknar eru núna hér á heimilinu af honum Skarpa, en hér eru þó myndir frá heimsókn (föður)ömmu og afa til okkar, og frá Kräftskivu sem við fórum á hjá Stínu & Co. En Skarpi er orðinn rosa stór og duglegur !!! Hér eru ágústmyndirnar af honum.

Sv: Ja, Skarpi har blivit såå stor och duktig!!! Här kan ni se Augustibilder på honum.  Nåstan alla blider som tas nuförtiden är på Skarpi... :-) Men här finns i alla fall lite andra bilder  - från farmors och farfars besök till oss, och från Isländsk kräftskiva som vi var på.




Júlí 2004
Loksins er ég kominn! Ég fæddist þann 8.júlí - og öllum finnst ég æðislegastur !! (auðvitað). Ég á að heita Skarphéðinn í höfuðið á honum afa - sem dó í apríl. Stórt nafn - fyrir stórmenni. Hér eru fyrstu myndirnar af mér.


Sv: Äntligen har jag kommit till världen !! Jag heter Skarphedinn (Skarpi), precis som morfar, som dog i april. Stort nam för en "stor" person!  Här kan ni se allra första bilderna på mig.




 
Júní 2004
Sól og sumar! Og ég verð bara stærri og stærri... :-)
Hér eru nýjar og gamlar bollumyndir. Við nokkrar píurnar í vinnunni á ITM fórum út að borða eitt  hádegið í Ulriksdal slottsträdgård, þar var allt í þvílíkum blóma, hér er albúm á netinu með nokkrum myndum af okkur. Það er stundum sagt að óléttar konur fari í hreiðurgerð á meðgöngunni - en ég fór allavega í fuglagerð...... Hér eru myndir frá Midsommar.

Sv: Äntligen sol och sommar! Vi på jobbet åkte till Ulriksdals slottsträdgård och åt lunch för att fira sommaren.... :-) Här är album på webben med några bilder. Det sägs ibland att gravida kvinnor börjar förbereda sitt "bo" åt ungen som är på väg. Men jag har i alla fall gjort fåglarna..... Här är nya och gamla tjockisbilder. Här är bilder från Midsommar.



Maí 2004
Vorið er nú komið og grundirnar gróa og blómstra - eins og ég og Randí. Við Freyr erum búin að stússast heilmikið í garðinum, kaupa tré og jarðarberjaplöntur og ég veit ekki hvað og hvað.
Og ef ég bara nennti myndi ég drullast til að setja inn einhverjar fleiri vormyndir hér.....en...  Meibí leiter.En hér eru myndir frá saumó sem ég fór í hjá Piu á Systemekologen. Halli og Helen komu í heimsókn um Hvítasunnuhelgina og við brölluðum ýmislegt saman, hér er albúm á netinu með myndum frá því.

Sv: Ja nu är det vår - underbart!  Här är några vårbilder (skulle kunna bli fler - om             jag bara orkade lägga ut dom.....!!). Pia fixade  Systemekologens syjunta, med middag - och pyssel förståss, jätteroligt!  

 


 

Apríl 2004
Pabbi fékk alvarlegt heilablóðfall þann 29.mars, og fékk ekki meðvitund aftur. Hann lést 5.apríl og við Freyr og Hrefna fórum til Íslands. Í erfiða og sorglega ferð.

   Hér má lesa æviágrip hans og skemmtilega minnigargrein sem Árný mágkona skrifaði um hann.

Sv: Pabba fick allvarlig hjärnblödning den 29.mars, och vaknade inte upp igen. Han dog sedan den 5.april. Jag, Freyr og Hrefna åkte till Island.

 


 

Mars 2004
Ég fór á námskeið í ullarþæfingu (Lengi lifi rollan!). Freyr fór í helgarferð til Köben og hitti mömmu sína og Víking sem voru þar á ferð, og við fórum svo saman í heimsókn til Bjarna og Bubba (og hundsins Freud) í Árósum. Ég er orðin feit!

SV: Jag gick en kurs i tovning, satt (stod) och tovade ull en helg, jätteroligt. Freyr åkte till Köbenhavn och träffade sina föräldrar som var där på besök. Vi åkte sedan tillsammans till Århus och hälsade på Bjarni och Bubbi - och  hunden Freud. Jag har blivit tjock!

 


 

Febrúar 2004

Við Freyr vorum dugleg að stunda vetraríþróttirnar..... eða þannig. Jæja við fórum allavega í labbitúr úta frosið Vallentuna vatnið heima hjá okkur. Það er búið að vera mjög fínt veður, stilla, frost og snjór síðan fyrir jól (póstkortaveður). Hér eru nokkrar vetrarmyndir. Svo fengum við nýjan bíl - eða réttara sagt Freyr. Halldóra fór í vikuferð til Íslands, það var rosa gaman!


SV: Vi har haft en underbar vinter, fint väder med snö och minusgrader sedan före jul. Här är några härliga vinterbilder.  Vi - eller rättare sagt Freyr fick en ny bil. Halldóra åkte till Island i slutet på februari - det var jätteroligt !

 


 

Janúar 2004
Randí finnst skítkalt úti..... heldur sig mest inni. Tekur bara púlsinn á stöðunni gegnum gluggann. 1.janúar fórum við í smá afmæliskaffi til Stínu - sem er nýbúin að fjölga í familíunni!  6. janúar átti svo heimasætan Hrefna afmæli, auðvitað var haldið uppá það. Við fórum með engil frá Ömmu í minningarlundinn í Hammarby kyrkogård.

SV: Kallt ute, Randí  nöjer sig med att titta genom fönstret! 1. januari hälsade vi på
Stína som fyller år på årets första dag.. Hrefna fyllde 15 år den 6. januari,
självklart firade vi det. Vi hängde upp en ängel från mormor i Hammarby kyrkogård.

 


 

 


Desember 2003
Já já, nóg að gerast......  Um miðjan des hittumst við nokkrar íslenskar píur heima hjá henni Tótu og bökuðum Sörur (og átum piparkökur og drukkum glögg!). Ellen mamma Freys og Víking komu í heimsókn á leið sinni til Egyptalands þar sem þau voru yfir hátíðirnar, og við fórum m.a. á þetta fína jólahlaðborð. Aðfangadagur var auðvitað á sínum stað, og svo vorum við með jólaboð á 2. í jólum. Áramótunum fögnuðum við heima hjá Höllu og Bjarna.


           SV:
Mycket på gång.... I mitten på December träffades vi några Isländska tjejer och bakade Sara Bernhards kakor - mmmm! Freys föräldrar kom på besök, vi åt julbord.... Äntligen blev det sedan julafton :-) Nyårsafton firade vi hos Halla og Bjarni. 

 


 

Nóvember 2003
Elena og Stebbi komu í heimsókn eina helgi frá Íslandi!   
Hrefnu fannst alveg bráðnauðsynlegt að halda uppá Feðradaginn þann 9. Nóvember. Svo hún fór snemma á fætur til að skipuleggja allt.... :-)


SV:
Elena och Stefán kom på besök från Island en helg!  
                                 Hrefna tyckte det var absolut nödvändigt att fira Farsdag den 9. November
. Så hon gick up tidigt för att planera allting.... :-)

 


 

Október 2003

Freysi átti afmæli.
Èg er byrjuð að vinna í verkefni á ITMx (Institute for Applied Environmental Research) sem er deild undir Stokkhólmsháskóla, í stað þess að vera bara af og til að vinna þar áður. Er semsagt að flytja af System Ekologi deildinni, eftir 5 ár, sem er soldið leiðinlegt, en nýja verkefnið er spennandi.

6.-10. okt var ég á ráðstefnu um geislavirk efni í umhverfinu sem var haldin í Stokkhólmi, var með póster um vistfræðileg áhrif af slíkum efnum.


SV: Freyr fyllde år. Jag har börjat jobba på ITMx, det är spännande - men tråkigt att lämna SystemEkologen. Den 6.-10. okt var jag på  konferens i Stockholm om effekter av radionuklider.

 


 


September 2003

Haustið er á leiðinni, sveppirnir spretta upp útí skógi.
Össi bróðir átti leið hér um Stokkhólm,við hittumst á kaffihúsi og seinna í brunch.
 Eftirað við höfðum keyrt hann útá flugvöll fórum við í minningarlundinn í Hammarby kyrkogård, fyrir börn sem deyja í móðurkviði, þar sem við eigum lítinn engil.

 

SV: Hösten på väg . Min bror Össur hälsade på. Vi besökte minneslunden i Hammarby kyrkogård norr om Stockholm, dår vi  har en liten ängel.

 


 

Ágúst 2003


   ...var gestkvæmur hjá okkur, fyrst komu Bubbi og Bjarni, svo þau Hjödda, Stefán og    Tumi. Rosa gaman ! Hér eru gestamyndir.
  Ég fór í svaka saumaklúbb í sveitinni hjá Christinu.

  Gäster hos oss - och syjunta ute på landet hos Christina !

 


 


Júlí-ágúst 2003

Íslandsferð - Islandsresa !!

Heilsaði meðal annars uppá Sigga bróður í sumarbústaðnum sem hann er að byggja. Fór með Elenu og Stebba í frábæra jeppa- og gönguferð í Reykjadal, rétt fyrir utan Reykjavík. En aðal dæmið var auðvitað ferming Hrefnu.
Hér eru myndir af pabba, og hér frá grillboði með uppáhöldunum mínum!

SV:  Underbara Island! - med bl.a. besök ut på landet där min bror Siggi bygger en stuga, och i Reykjadalur med Elena och Stebbi där vi badade i en källa (varm förståss).  Men huvudgrejen var jo Hrefnas konfirmation. Sedan passade vi jo på och hälsade på alla. Här är bilder på en som står mig väldigt nära, och här kommer bilder från träff med andra favoriter...

 

 


 

Júlí 2003


            Sol och sommar i Sverige!

 


 






Fjöldi gesta á síðunni / Antall gäster på sidan: